» 2 hafa sagt sína skoðun
Á Laugardaginn ætlum við allar að hittast og fara saman á stælinn, spreita okkur í diskokeilu og bruna síðan í Grindavíkina og spila .. Mæting upp í íþróttahús kl 18:00..
Einhverjar uppástugur á skemmtilegu og æsispennandi spili ??
Viljum við vinsamlegast biðja allar um að mæta með sólgleraugun vegna mikilla ásókna paparazzy's undanfarna daga
Ble ble
» 5 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
» 0 hafa sagt sína skoðun
Miðvikudaginn 17:30 í íþróttahúsi
Fimmtudagurinn 06:30 í orkubúinu
Á æfingunni í gær fengum við niðurstöður varðandi æfingaferð sem liðið var spennt fyrir.. Niðurstaðan er sú að Ekki verður haldið út fyrir klakann í æfingaferð að þessu sinni.. Lýðurinn vill heldur meiri tíma til þess að fjárafla, plana og undirbúa slíka ferð... Ekki svekkja sig því hinsvegar er klárt mál að farið verður í æfingaferð innan landsteinanna Jibbí.... Takið því frá helgarnar í september því ætlunin er sú að fara í 3-4 daga æfingaferð einhverja helgina í september, þá annahvort til Akureyrar, Vestmannaeyjar eða á einhvern afskekktan stað á okkar ástkæra klaka Það verður alveg jafn gaman eins og að fara út þar sem nefndin fer í að skipuleggja þessa helgi frá toppi til táar þar sem margt skemmtilegt verður gert Einhverjar uppástungur? erum opnar fyrir slíkum hér í commentum að neðan
Ákveðið hefur verið að stofna reikning í sparisjóðnum (af einhverjum ástæðum) þar sem aðeins við meistaraflokkur kvenna getum safnað okkur fyrir ýmsum uppákomum og fl. .... Verum duglegar að ná okkur í pening þar sem við getum þétt hópinn enn betur saman Gils!!
Uppástungan er sú að hver leikmaður leggi inn Á reikninginn 500 kr á mánuði hverjum?? nú er undir ykkur liðsfélugum góðum að samþykja eður ei ? (ef þessi tillaga verður samþykkt verður fylgst með og rukkað þá sem reyna að svíkjast undan)... Inná þennan reikning fer einnig sektarpeningur og verkefni sem við tökum að okkur
Ef við verðum duglegar gætum við einnig t.d. safnað okkur fyrir æfingagöllum.......
Ég gef ykkur orðið, endilega komið með uppástungur og verið ófeimnar að koma skoðunum ykkar í ljós
» 3 hafa sagt sína skoðun
Jæja stelpur mínar...
Ég er búin að finna mót fyrir ykkur og það er svolítil pressa á mér að láta vita hvort Grindavík ætlar að taka þátt eða ekki...
Þetta mót er haldið í Hørsholm sem er sirka 30 mín frá Kaupmannahöfn ef farið er með lest. Nú þegar hafa fjögur lið skráð sig til leiks. Þeir rukka 350 kr danskar á hvern leikmann sem dekkar þá laun fyrir dómara og mat fyrir ykkur að mér skildist á meðan mótinu stendur.
Dagsetning er þessi 14-16 september.....
Nú verðið bara að segja mér hvort þetta sé málið því ég þarf þá sem fyrst að skrá ykkur og líka að þið finnið flugfar og gistingu....
Endilega látið vita sem allra allra allra fyrst....
Kv Erna Rún
Jæja stúlkur, nú er stefnan að fara í æfingaferð til Danmerkur.. Erna er að vinna í þeim málum en nú þurfum við sko aldeilis að fara að safna fyrir ferlegheitunum.. Stefnan er sú að fyrsta fjáröflunin verður lokið fyrir Miðvikudaginn 8. ágúst... (vil ekki skrifa sá fjáröflun hér inn á því hún er so sniðug sko ... En ég vil núna fá að vita hverjar ætla að koma með í æfingaferðina því þær sem ætla !VERÐA! að taka þátt í !ÖLLUM! fjáröflunum, það sleppur enginn auðveldlega.. Svo verið á tánum stelpur fyrir næstu viku... Þær sem ætla í æfingaferðina kommentið þið!! Svo við vitum c.a. fjöldann og allt það!!!!
Kv. Sjálfskipaða nefndin
Alma ?
Berglind ?
Ingibjörg ?
Íris ?
Jenný ?
Jovana ?
Lilja ?
Ólöf Helga ?
Petrúnella ?
Svetlana ?
PLÍÍÍSSSSS HARPA?
PLÍÍSSSSSS HELGA?
Sá að Tinna, Gréta og Stella mættu í tröpputímann, þannig ef þið stúlkukindur atlið að vera með í vetur kommentið þið þá líka fyrir neðan hvort þið ætlið að taka þátt..
Sælar stelpur mínar... Vá hvað það er langt síðan ég skrifaði á þetta blogg... Jæja ég er allavega að skrifa hérna inn til að ráðskast aðeins með ykkur... Mér var falið það verkefni að sparka aðeins í rassinn á ykkur í sambandi við æfingaferð í haust... Mér sýnist flestar vilja skreppa út og spila við önnur lið en hérna heima en mér vantar samt alveg 100% svör... Ætlið þið að fara eða ekki???? Ef þið ætlið að fara þá þurfum við að fara að safna og verkefnið mitt var einmitt það að hjálpa ykkur að skipuleggja það starf, þá meina ég fjáraflanir og þess háttar! (oh ömurlegt að vera eitthvað að fjárafla en fá ekki að fara með hehe) Jæja allavega SETJIÐ í komments að þið séuð alveg 100 % á því að fara út því þá getum byrjað að láta hendur standa fram úr ermum og hafist handa við að safna og líka að finna mót!
Bestu kveðjur Erna Rún
» 14 hafa sagt sína skoðun
Hann Magnús Andri hefur nú sent Petrúnellu tölvupóst að það sé möguleiki á að fara á mót í Kaupmannahöfn í haust þar sem lið frá Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi koma. Ef liðið hefur áhuga þá endilega hafið samband við Hildi eða Magga Andra. Einnig komumst við í íþróttahúsið til þess að æfa og spila ef við viljum. Það þarf bara að fá lykil í sundlauginni. Petrúnella fékk tölvupóst frá Magga Andra varðandi ferðina.
Drífum þá í fundi og ákveðum okkur! Nú er búið að gera það sem rætt var á fundinum og nú þurfum við bara að taka til hendinni.
Fyrir hönd pabba, Berglind Anna
Hæ hæ stelpur
Hvað segið þið um að skella okkur á landsmót í Júlí, spila nokkra leiki og hafa gaman.
Endilega að setja inn komment ef að þið eruð til. Held að við verðum að vera búnar að skrá okkur fyrir 25.jún
Kv Hildur
» 1 hafa sagt sína skoðun
Hverri langar að fara í keppnisferð út fyrir klakann fyrir tímabilið?
Rétt upp hendi
Hæ hæ
Þær sem eiga eftir að borga gallana getið lagt inn á mig, ég ætla að reyna að komast fyrir æfingu á morgun ef allar verða búnar að borga.
0309-26-1510
151081-5849
kv Hildur